Fallegt einbýlishús afhent á Hvolsvelli

Glæsilegt og rúmgott einbýlishús með bílskúr afhent á Hvolsvelli. ÚG bygg ehf afhenti fullbúið og glæsilegt einbýlishús á Hvolsvelli í byrjun árs 2024. Húsið hefur fengið heitið Auður en eigendur þess eru Auður og Óli en þau komu að hönnun hússins og gerðu það að sínu. Húsið er bjart og rúmgott með fallega gólfsíða glugga. Við óskum þeim innilega til hamingju með húsið og góða samvinnu. 



Eftir Guðlaug Svansdóttir 1. mars 2025
Bygging á þessu fallega parhúsi á Hvolsvelli er lokið. Vinnan við húsið hófst í september 2024 og tók 5 mánuði frá því að byrjað var að reisa það. Við erum gríðarlega ánægð með útkomuna og óskum nýjum eigendum á öðrum hluta hússins til hamingju með nýja húsið þeirra. Hinn hluti hússins er kominn í sölu en húsið er tilbúið til afhendingar strax og er fullbúið með öllum innréttingum og heimilistækjum. Sjá fleiri myndir hér.
Eftir Guðlaug Svansdóttir 2. september 2024
Tvö falleg Soltorp frístundahús voru afhent Helga Jóhannessyni og Þórnýju Jónsdóttur í ágúst. Húsin voru flutt til Íslands frá Svíþjóð í maí. ÚG bygg sá um allt ferlið frá hönnun að fullbúnum húsum og er útkoman tvö glæsileg hús með mögnuðu útsýni til Vestmannaeyja og Eyjafjallajökuls. Frístundahúsin er með sömu góðu einangrun í þaki (390mm steinull) og útveggjum (240mm steinull) og íbúðarhúsin frá Jörntrahus og gluggarnir eru einnig með þreföldu gleri. Frístundahúsin frá Jörntrahus hafa reynst Svíum einstaklega vel í norður Svíþjóð frá árinu 1930 og munu án efa standa sig vel á Íslandi líka. ÚG bygg óskar Helga og Þórnýju til hamingju með húsin og þakkar þeim fyrir góða samvinnu við verkefnið. Á myndinni eru hjónin Helgi og Þórný með Úlfari eiganda ÚG bygg ehf við afhendingu húsanna.
Eftir Guðlaug Svansdóttir 5. apríl 2024
Við fengum boð á fund hjá Sænska sendiráðinu til að segja frá sænsku húsunum sem við erum að flytja inn frá norður Svíþjóð. Úlfar var með erindi um hvað þarf að hafa í huga þegar flutt eru inn húseiningar frá Svíþjóð og þá með áherslu á byggingastaðla, hönnun, samvinnu, flutning og f.l. Helstu atriðin eru, varðandi öll hús sem eru flutt inn, að huga þarf sérstaklega að íslenskum byggingarstöðlum varðandi vind og vindálag. Einnig þarf að huga að vatnsálagi en eins og við Íslendingar vitum þá rignir eða snjóar ekki alltaf beint niður á Íslandi. Sænsku húsin ganga þó mun lengra varðandi einangrun í útveggjum og lofti en flest íslensk hús gera en íslensku byggingarstaðlarnir gera ekki eins miklar kröfur og þeir sænsku hvað þetta varðar. Einnig eru húsin með þrefalt gler en þetta allt gerir það að verkum að húsin spara orku og þar með rafmagns- og/eða hitakostnað. Þakjárnið á húsinu er sett á lektur og á milli þeirra og járnsins eru loftun í hverju bili sem gerir það að verkum að allur raki ratar beint út, það er mjög mikilvægt til að forðast rakamyndun í öllu húsnæði. Annar kostur við að setja járnið á lektur er að ekki er verið að gata þakpappann eins og venjan er á Íslandi en íslenska leiðin er þannig að járnið sett beint á þakpappann og þar með getur hann verið eins og gatasigti. Önnur erindi á fundinum voru einnig mjög fróðleg og greinilegt að Svíar eru framarlega í mörgu þegar kemur að tækni og húsbyggingum. Við þökkum Pär Ahlberger sendiherra fyrir gott boð.
Úlfar í heimsókn í verksmiðjunni hjá Jörnträhus í Svíþjóð
Eftir Guðlaug Svansdóttir 3. apríl 2024
Tvö falleg Soltorp frístundahús voru afhent Helga Jóhannessyni og Þórný Jónsdóttur í ágúst. Húsin voru flutt til Íslands frá Svíþjóð í maí. ÚG bygg sá um allt ferlið frá hönnun að fullbúnum húsum og er útkoman tvö glæsileg hús með mögnuðu útsýni til Vestmannaeyja og Eyjafjallajökuls. Frístundahúsin er með sömu góðu einangrun í þaki (390mm steinull) og útveggjum (240mm steinull) og íbúðarhúsin frá Jörntrahus og gluggarnir eru einnig með þreföldu gleri. Frístundahúsin frá Jörntrahus hafa reynst Svíum einstaklega vel í norður Svíþjóð frá árinu 1930 og munu án efa standa sig vel á Íslandi líka. ÚG bygg óskar Helga og Þórnýju til hamingju með húsin og þakkar þeim fyrir góða samvinnu við verkefnið. Á myndinni eru hjónin Helgi og Þórný með Úlfari eiganda ÚG bygg ehf við afhendingu húsanna.