VERKEFNI
Einingahús
Auður einbýlishús með mikla lofthæð
Auður einbýlishús á einni hæð, stærð 227,1 fm. Húsið er einstaklega glæsilegt, hátt til lofts og stórir gólfsíðir gluggar. Húsið er með bílskúr og hægt er að fjölga herbergjum og/eða stækka rýmin.
Soltorp frístundahús
Soltorp frístundahús á einni hæð með verönd. Húsið er 50 fm en getur verið stærra/minna eftir óskum. Tvö svefnherbergi, salerni með þvottaaðstöðu og sturtu. Eldhús og stofa. Húsin eru með sama byggingarstaðla og íbúðarhúsin og eru glæsileg frístundahús.
Kalldal íbúðar-/frístundahús
Kalldalhúsin eru hægt að hafa stærri/minni eftir óskum. Fjöldi herbergja og wc er sömuleiðis hægt að velja. Hátt er til lofts og fallegir gluggar. Pallur er um 70 fm á myndinni, hægt að stækka/minnka eftir óskum.
Strycksele einbýli/par/frístundahús
Strycksele húsin koma í ýmsum stærðum og gerðum. Geta verið á einni eða tveimur hæðum, einbýlishús, parhús eða frístundashús. Innra skipulag er hægt að breyta eftir óskum. Húsið er fallegt með mikla lofthæð og fallega glugga.
Hönnun og ráðgjöf
Samstarfsaðilar
Spesían Steypustöð
Spesían framleiðir steinsteypu og afhendir hana á steypubílum með færibandi sem er áfast steypubílnum, þannig sparast kostnaður við dælubíl. Spesían er þekkt fyrir mikla þjónustulund og gott verð. Spesían er á Hvolsvelli og tekur einnig að sér ýmis jarðvegsverkefni enda eru þeir vel tækjum búinir til þess.
Hafsteinn Sigurbjörns
Hafsteinn Sigurbjörnsson er með öflugan Kranabíl á Hvolsvelli. Hann hefur unnið með okkur í að reisa húsin. Hann er mjög fær kranamaður sem við getum vel mælt með í öll verk.
Jörnträhus
Jörnträhus í Svíþjóð er fyrirtæki sem hefur framleitt timburhús frá árinu 1930. Þeir byrjuðu á að framleiða frístundahús en framleiða í dag hús í öllum stærðum og gerðum. Þeir framleiða hágæða hús og einungis úr timbri sem vex í norður Svíþjóð. Myndir er frá heimsókn ÚG bygg hjá Jörnträhus 2023.